Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

Mál nr. 213/2021 - Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 213/2021

Þriðjudaginn 20. júlí 2021

A

gegn

Barnavernd B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Guðfinna Eydal sálfræðingur og Björn Jóhannesson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 24. apríl 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Barnaverndar B, sem kynnt var kæranda með bréfi, dags. 8. apríl 2021, um að ekki yrði aflétt nafnleynd vegna tilkynningar um aðstæður fósturdóttur kæranda, C. 

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Barnavernd B barst tilkynning undir nafnleynd þann 26. janúar 2021. Efni tilkynningar voru áhyggjur af stúlkunni í umsjá kæranda. Tilkynnandi taldi að stúlkan væri beitt andlegu ofbeldi og að fósturmóður sinnti ekki félagslegum þroska hennar.

Með beiðni kæranda til Barnaverndar B, dags. 8. apríl 2021, var þess óskað að nafnleynd tilkynningarinnar yrði aflétt. Beiðni kæranda var hafnað með ákvörðun, dags. 8. apríl 2021. Í ákvörðun Barnaverndar B kemur eftirfarandi fram, auk þess sem þar er bent á kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála:

„Þrátt fyrir að ekki sé dregið í efa að það sé þér mikilvægt að vita hver tilkynnandi er verður ekki talið að fyrir hendi séu aðstæður til þess að aflétta megi nafnleynd, sérstaklega með tilliti til þeirra hagsmuna sem í húfi eru fyrir barnaverndarstarf almennt. Þá er í þessu tilviki ekki grunur um að tilkynnendur hafi vísvitandi komið á framfæri röngum eða villandi tilkynningu þannig að ástæða sé til þess að aflétta nafnleynd og ákæra með vísan til refsiákvæða barnaverndarlaga.“

 

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 24. apríl 2021. Með bréfi, dags. 27. apríl 2021, óskaði úrskurðarnefnd velferðarmála eftir greinargerð Barnaverndar B vegna kærunnar. Greinargerð Barnaverndar B barst nefndinni með bréfi, dags. 11. maí 2021, og með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. maí 2021, var hún send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki. 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar þess að nafnleynd tilkynnanda verði aflétt.

Í kæru kemur fram að kærandi telji að tilkynning til barnaverndar sé komin frá sambýliskonu fyrrverandi eiginmanns kæranda. Hvorki sambýliskonan né fyrrverandi maður kæranda hafa nokkuð að gera með barnið sem um ræðir og hafa ekki séð hana eða heyrt í henni í rúmt ár. Sambýliskonan hafi komið afar illa fram við öll fjögur börn kæranda og hafi notað hvert tækifæri til að tala illa um kæranda í þeirra eyru sem og annarra. Þá hafi hún gasprað um það við þriðja aðila og stært sig af því að hafa tilkynnt kæranda til barnaverndar. Í kjölfarið hafi verið haft samband við kæranda og staðfest að hún hefði verið tilkynnt til barnaverndar.

Kærandi kveðst eðlilega verða sár og svekkt yfir þessari tilkynningu en verra þyki henni ef "kerfið" hjálpar tilkynnanda að komast upp með svona lygar. Kærandi kveðst sjálf starfa í heilbrigðiskerfinu og hafi sjálf tilkynnt til barnaverndar. Þetta sé ekki verkfæri til svona verka líkt og með þessa konu heldur þurfi að vera traust í garð kerfisins og að hagur barnanna sé ávallt hafður að leiðarljósi. Kærandi óski einlæglega eftir því að nafnleynd verði aflétt og með því verði spornað við því að aðilar, líkt og í því tilviki sem um ræðir, geti notað "kerfið" sem vopn gegn saklausu fólki sem og börnum.

Kærandi bendir á að yngsta dóttir hennar komi úr fósturkerfinu og hafi átt nógu erfitt uppdráttar í lífinu þó að hún þurfi ekki að mæta svona framkomu. Kærandi hafi nákvæmlega ekkert að fela. Barnavernd hafi komið og rætt við hana og barnið svo og tvö eldri börn kæranda. Barnavernd hafi ekkert séð athugavert, enda ekki við því að búast.

Kærandi telur að fyrrgreind tilkynning sé ekkert annað en misnotkun á barnaverndarkerfinu og taka beri á því þar sem slíkt eigi ekki að líðast. Nógu erfitt sé að fá kerfið til að grípa inn í þegar þörf sé á en því hafi kærandi kynnst í gegnum starf sitt.

 

III.  Sjónarmið Barnaverndar B

Í greinargerð Barnaverndar B er vísað til þeirrar mikilvægu meginreglu að virða eigi nafnleynd tilkynnanda því að annars geti skapast sú hætta að almenningur veigri sér við að tilkynna um bágar aðstæður barna. Hagsmunir barnaverndarstarfs í heild eigi að vega þyngra en hagsmunir einstakra málsaðila af því að fá nafnleynd tilkynnanda aflétt.

                                                                                                                             

Í kæru sé vísað til þess að kærandi þekki meintan tilkynnanda og telji hann hafa misnotað kerfið. Barnavernd B geti eðli málsins samkvæmt ekki tekið afstöðu til fullyrðinga kæranda vegna trúnaðarskyldu við tilkynnanda. Töluleg gögn sýni að nokkur hluti þeirra tilkynninga sem barnavernd berast á hverju ári séu tilefnislausar og sé þeim málum lokað eftir könnun. Þrátt fyrir að könnun mála leiði í ljós að ekki sé þörf á inngripi barnaverndar megi þó ekki ætla sem svo að tilkynnandi hafi ekki haft góðan ásetning þegar tilkynnt sé um aðstæður barns. Tilkynning til barnaverndar sé ekki kæra heldur ósk um aðstoð fyrir viðkomandi fjölskyldu. Könnun máls sé ekki íþyngjandi inngrip inn í líf fjölskyldu. Fólk sé hvatt til að tilkynna um aðstæður barna og beri skylda til þess, hafi það minnsta grun um að aðstæður þeirra séu ekki eins og best sé á kosið. Mikilvægt sé eins og fram hafi komið að almenningi sé gert kleift að upplýsa barnavernd um aðstæður barna og það sé hlutverk barnaverndar að kanna málið og meta hvort tilkynning eigi við rök að styðjast, en slíkt sé ekki hlutverk tilkynnanda.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar þá ákvörðun Barnaverndar B að hafna kröfu kæranda um að nafnleynd verði aflétt vegna tilkynningar sem barst Barnavernd B 26. janúar 2021. Kærandi telur að tilkynning hafi vísvitandi verið tilefnislaus og því skuli aflétta nafnleynd tilkynnanda.

Reglur um nafnleynd koma fram í 19. gr. bvl. og tengjast reglum um tilkynningarskyldu sem fram koma í 16. gr. sömu laga. Í 1. mgr. 16. gr. laganna er kveðið á um tilkynningarskyldu almennings. Þar segir að hverjum þeim sem hafi ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu þess og þroska í alvarlega hættu sé skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd.

Í 2. mgr. 19. gr. bvl. kemur fram sú meginregla að óski tilkynnandi samkvæmt 16. gr. laganna eftir nafnleynd gagnvart öðrum en barnaverndarnefnd skuli það virt, nema sérstakar ástæður mæli gegn því. Þessi regla kemur einnig fram í 13. gr. reglugerðar nr. 56/2004 um málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd. Þar segir að fái barnaverndarnefnd rökstuddan grun um að tilkynnandi hafi vísvitandi komið á framfæri rangri eða villandi tilkynningu geti nefndin tekið ákvörðun um að aflétta nafnleyndinni. Samkvæmt þessu er meginreglan sú að nafnleynd verður ekki aflétt nema í þeim undantekningartilvikum að sérstakar ástæður séu fyrir því.

Þegar tilkynning berst barnaverndaryfirvöldum um ætlaðar óviðunandi aðstæður barns hvílir sú skylda á þeim að hefja ekki könnun máls nema rökstuddur grunur sé um að tilefni sé til þess, sbr. 5. mgr. 21. gr. bvl.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er til þess að líta að samkvæmt 2. mgr. 19. gr. bvl. er meginreglan sú að nafnleyndar skuli gætt varðandi tilkynningar samkvæmt 16. gr. laganna og  þurfa sérstakar ástæður að vera fyrir hendi til að nafnleynd sé ekki virt. Ekki verður talið að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í því máli sem hér um ræðir að þær réttlæti að nafnleynd tilkynnanda sé aflétt. Samkvæmt þessu og með vísan til 2. mgr. 19. gr. barnaverndarlaga ber að staðfesta hina kærðu ákvörðun.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Barnaverndar B frá 8. apríl 2021 um að synja kröfu A, um að aflétta nafnleynd af tilkynningu vegna fósturdóttur sinnar, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum